fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Furða sig á uppákomu á fundi Þorsteins – „Í fullum rétti á að pirra sig aðeins“

433
Laugardaginn 21. febrúar 2026 07:30

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands. Mynd - Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Fannar Sigurðsson og Hörður Snævar Jónsson gerðu upp allt það helst í Íþróttavikunni á 433.is.

Það vakti athygli á fréttamannafundi í Laugardal í byrjun vikunnar, hvar Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari opinberaði leikmannahópinn fyrir leiki gegn Englandi og Spáni, að þjarmað hafi verið af honum af fréttamönnum vegna þess að Ísland spilaði ekki leik í síðasta opinbera landsleikjaglugga.

Ísland spilaði enga leiki í glugganum í nóvember, á meðan mörg önnur landslið voru á ferðinni. KSÍ fór ekki leynt með það fyrir áramót að ástæðurnar væru fjárhagslegar. Þorsteinn varð nokkuð pirraður á ítrekuðum spurningum um þetta mál á fundinum.

„Hann hefur stundum verið rangstæður þegar hann æsir sig en þarna fannst mér hann í fullum rétti á að pirra sig aðeins. Eysteinn fór í viðtal í nóvember og útskýrði af hverju KSÍ hefði ekki farið í þetta verkefni. Þannig að þeir sem voru að spyrja spurningana hefðu kannski mátt kynna sér málið aðeins betur áður en þau fóru að reyna að gera Steina að einhverjum blóraböggli í þessu máli,“ sagði Hörður og Helgi tók undir.

„Hann fékk einhverjar fjórar spurningar frá tveimur fjölmiðlum um mál sem er klárlega ekki í hans verkahring og var afgreitt í nóvember. Hann fær alla mína samúð þarna. Steini og landsliðið tóku út sín leiðindi frá mér og fleirum eftir EM í sumar en nú þarf að horfa fram veginn,“ sagði Helgi.

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn