fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Guardiola ræðir titilbaráttuna eftir að Arsenal missteig sig í vikunni

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 20. febrúar 2026 13:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, telur að titilbaráttan í ensku úrvalsdeildinni sé langt frá því að vera útkljáð og að margt eigi eftir að gerast á lokasprettinum.

City er í harðri baráttu á toppi deildarinnar og Guardiola var spurður út í stöðuna. Arsenal gerði jafntefli við Wolves um helgina og er fimm stigum á undan City, en lærisveinar Guardiola eiga leik inni.

Bæði lið hafa því pálmann í sínum höndum þar sem þau eiga eftir að mætast.

„Þetta voru níu stig því við eigum leik til góða. Þegar öll lið hafa spilað jafn marga leiki munu margir hlutir gerast fram að lokum tímabilsins,“ sagði Spánverjinn.

Hann lagði einnig áherslu á að margir leikmenn liðsins skorti reynslu af slíkri baráttu. „Um 70 prósent leikmannanna eru nýir og hafa ekki þessa reynslu. Reynslan er að vinna næsta leik,  það er það eina sem skiptir máli,“ bætti Guardiola við.

City hefur verið eitt af sterkustu liðum deildarinnar undanfarin ár, en Guardiola gerir sér grein fyrir að samkeppnin er hörð og ekkert er gefið í toppbaráttunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn