

Óvissa ríkir um framtíð Oliver Glasner hjá Crystal Palace eftir að fregnir bárust af því að viðræður hafi átt sér stað milli stjórnar félagsins og þýska knattspyrnustjórans í dag.
Til skoðunar er hjá Palace að hreinlega reka Glasner sem ætlar sér að hætta með félagið í sumar.
Crystal Palace þarf því að taka mikilvæga ákvörðun á næstu dögum um hvort halda eigi Glasner út tímabilið eða gera breytingar strax.
Glasner ákvað fyrir áramót að hætta með Palace í sumar en stuðningsmenn félagsins eru orðnir þreyttir á honum.
Það gæti því dregið til tíðinda á allra næstu dögum.