

Kolbeinn Finnsson er genginn til liðs við norska félagið Vålerenga á láni frá FC Utrecht. Lánssamningurinn gildir til 30. júní og hefur Vålerenga jafnframt tryggt sér kauprétt á leikmanninum.
Kolbeinn, sem er 26 ára vinstri bakvörður, er samningsbundinn Utrecht til sumarsins 2027 en mun nú leika í konungsbláu treyjunni í norsku úrvalsdeildinni út tímabilið.
Íþróttastjóri Vålerenga, Joacim Jonsson, segir félagið hafa fylgst lengi með Íslendingnum og að áður hafi verið reynt að fá hann til félagsins.
Kolbeinn hefur leikið með félögum á borð við Groningen, Brentford og Borussia Dortmund á ferlinum, en vakti fyrst verulega athygli í Danmörku með Lyngby. Þá á hann að baki fjölmarga landsleiki fyrir yngri landslið Íslands og 14 A-landsleiki.
Varnarmaðurinn segist spenntur fyrir nýju ævintýri og hlakkar til að sanna sig með Vålerenga á komandi mánuðum.