fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Stuðningsmenn Arsenal stressaðir – Piers Morgan telur að sagan sé að endurtaka sig

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 19. febrúar 2026 13:00

Piers Morgan.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðningsmenn Arsenal eru æfir eftir að liðið kastaði frá sér 2-0 forystu gegn Wolves þar sem liðið missti dýrmæt stig í titilbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni.

Lið Mikel Arteta var með góð tök á leiknum á Molineux og komst tveimur mörkum yfir án þess að ná að klára dæmið.

Arsenal hefur nú leikið einum leik meira en helstu keppinautar sínir í Manchester City og er með fimm stiga forskot, en það gæti hafa verið mun meira.

Manchester City getur minnkað muninn niður í tvö stig um helgina þegar liðið mætir Newcastle. Á sama tíma bíða Arsenal erfiðir leikir, fyrst gegn Tottenham í grannaslag Norður-Lundúna og svo gegn Chelsea.

Reiði stuðningsmanna leynir sér ekki. Piers Morgan skrifaði á samfélagsmiðlinum X.

„Við erum að kasta þessu frá okkur. Aftur.“

Þá bentu aðrir á að leikmenn hefðu sýnt meiri baráttu eftir lokaflautið, þegar upp úr sauð milli liðanna, en inni á vellinum sjálfum.

Ljóst er að spennan er að ná hámarki í toppbaráttunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn