

Kólumbíski kantmaðurinn Luis Díaz segir ákvörðun sína um að yfirgefa Liverpool og ganga til liðs við Bayern München hafa verið einfalda frá fyrstu stundu.
Í viðtali við Sky í Þýskalandi segir hann að áhugi Bayern hafi strax sannfært sig.
„Þegar Bayern hafði samband vissi ég strax að ég vildi fara. Það fyllti mig stolti enda þekkti ég félagið vel og vissi hverju ég mætti búast við,“ sagði Díaz.
Hann telur sig hafa tekið rétta ákvörðun með því að ganga til liðs við þýska stórveldið. „Þetta er ótrúlegt lið með framúrskarandi aðstöðu. Þegar maður kemur á nýjan stað vill maður gefa allt sitt og líða vel, það skiptir mestu máli fyrir leikmann og fjölskyldu hans.“
Díaz viðurkennir þó að tungumálið hafi reynst erfiðast í aðlöguninni, en segist sannfærður um að hann falli vel inn í hópinn.
„Bayern sýndi mér traust og ég vil endurgjalda það inni á vellinum,“ bætti hann við.