

Fyrrum leikmaður í ensku úrvalsdeildinni hefur loksins stigið fram og opinberað að hann sé hinn svokallaði „The Secret Footballer“ eftir 15 ár í felum.
Dave Kitson, fyrrverandi framherji Reading og Stoke, eyddi stórum hluta síðasta áratugar í að skrifa hreinskilnar greinar og gaf út fimm bækur undir dulnefninu. Þar lét hann í ljós óánægju sína með þróun nútímafótbolta og lýsti reynslu sinni innan úr klefanum af mikilli einlægni.
Í áraraðir reyndu stuðningsmenn að komast að því hver stæði á bak við skrifin. Á netinu voru settar fram kenningar og vísbendingar tíndar til í þeirri von að afhjúpa höfundinn.
Nú hefur Kitson, sem er 46 ára, bundið enda á getgáturnar í viðtali á YouTube.
„Ég er The Secret Footballer. Ég hef aldrei sagt það upphátt áður,“ sagði Kitson. Hann útskýrði að hugmyndin hefði kviknað þegar hann var óánægður með þá stefnu sem knattspyrnan var að taka og að hann hefði þurft útrás til að tjá sig, ekki síst vegna andlegrar heilsu sinnar.
Kitson lék 81 leik í úrvalsdeildinni og skoraði í þeim 15 mörk. Á ferlinum spilaði hann alls 403 leiki fyrir sjö félög, skoraði 115 mörk og lagði upp 30 til viðbótar.