fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Barcelona vill lækka verðið en United stendur fast á sínu

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 12:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Barcelona vill reyna að semja um lægra verð en 30 milljóna evra kaupákvæði í samningi Marcus Rashford, en viðræður félaganna eru hafnar samkvæmt fréttum frá Matteo Moretto.

Rashford hefur verið orðaður við áframhaldandi dvöl á Spáni og sjálfur á hann að hafa áhuga á að vera áfram hjá Barcelona. Á sama tíma eru getgátur um að Michael Carrick vilji fá framherjann aftur til Manchester United.

Forráðamenn United eru þó sagðir ekki hafa áhuga á að endursemja um upphæðina sem sett er í kaupákvæðinu. Félagið vill halda sig við 30 milljónir evra ef Barcelona ætlar að gera samninginn varanlegan.

Staðan gæti því orðið snúin ef Barcelona reynir að þrýsta verðið niður á meðan United stendur fast á sínu. Rashford sjálfur virðist þó hlynntur áframhaldandi veru á Camp Nou.

Næstu vikur gætu ráðið miklu um framtíð enska landsliðsmannsins, en ljóst er að bæði félög þurfa að komast að samkomulagi ef félagaskiptin eiga að ganga í gegn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn