fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Arteta óttast að Arsenal geti ekki keppt um alla titlana

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, viðurkennir að hann hafi áhyggjur af því að meiðslavandræði geti sett strik í reikninginn hjá liðinu í baráttunni á öllum vígstöðvum.

Arsenal er enn með í baráttunni um fjóra titla á tímabilinu, en meiðsli á miðjumönnum hafa valdið Arteta höfuðverk. Fyrirliðinn Martin Ødegaard missti af enska bikarnum á Wigan vegna meiðsla sem hann varð fyrir í jafntefli gegn Brentford. Hann er nú á meiðslalistanum ásamt Kai Havertz og Mikel Merino.

„Já, sérstaklega þar sem við virðumst lenda í þessu eftir stöðum. Fyrst voru það framherjar, svo varnarmenn og nú miðjumenn,“ sagði Arteta þegar hann var spurður út í stöðuna.

Arsenal er á toppi úrvalsdeildarinnar, komið í úrslit deildabikarsins og vann sinn riðil í Meistaradeildinni. Arteta segir mikilvægt að fá leikmenn til baka sem fyrst, bæði til að fjölga valkostum og auka sveigjanleika liðsins.

Vegna meiðsla þurfti Arteta að færa Bukayo Saka inn á miðjuna í síðasta leik. Hann útilokar ekki að nota hann þar aftur. „Hann er nær marki, erfiðari viðureignar og mjög góður í að finna svæði. Þar getur hann sært andstæðinga með boltann,“ sagði Arteta.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn