fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Þorvaldur einn í framboði og enginn fer fram gegn núverandi stjórnarfólki

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 16. febrúar 2026 20:52

Þorvaldur Örlygsson, formaður KSÍ. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ er sjálfkjörinn í embættið næstu tvö árin. Enginn fer fram gegn honum. Sama má segja um þá fjóra sem eru að klára kjörtímabilið sitt í stjórn.

80. ársþing KSÍ fer fram á Egilsstöðum 28. febrúar næstkomandi. Framboð til stjórnar KSÍ skal skv. 17. grein laga KSÍ berast skrifstofu KSÍ skriflega minnst hálfum mánuði fyrir þing eða í síðasta lagi 14. febrúar sl. Kjörnefnd er þó heimilt að samþykkja framboð sem fram kemur síðar ef nægjanlegur fjöldi hefur ekki tilkynnt framboð sitt innan tilkynningarfrests, sbr. grein 17.4 í lögum KSÍ.

Stjórn KSÍ er kosin á knattspyrnuþingi og hafa allir kjörnir fulltrúar atkvæðisrétt.

Kosning formanns

Þorvaldur Örlygsson var kjörinn formaður KSÍ á 78. ársþingi KSÍ þann 24. febrúar 2024. Fyrsta kjörtímabili hans lýkur á 80. ársþingi KSÍ 28. febrúar nk.

Eftirtalin hafa boðið sig fram til formanns:

Þorvaldur Örlygsson

Kosning í stjórn

Tveggja ára kjörtímabili eftirtalinna í stjórn KSÍ lýkur á 80. ársþingi KSÍ 28. febrúar nk.:

Ingi Sigurðsson
Pálmi Haraldsson
Sveinn Gíslason
Þorkell Máni Pétursson

Eftirtalin hafa boðið sig fram til stjórnar:

Ingi Sigurðsson
Pálmi Haraldsson
Sveinn Gíslason
Þorkell Máni Pétursson
Kosning varamanna í stjórn

Tveggja ára kjörtímabili varamanna í stjórn líkur á 80. ársþingi KSÍ 28. febrúar nk.:

Hildur Jóna Þorsteinsdóttir
Jón Sigurður Pétursson
Sigrún Ríkharðsdóttir

Eftirtalin hafa boðið sig fram sem varamenn í stjórn:

Hildur Jóna Þorsteinsdóttir
Jón Sigurður Pétursson
Sigrún Ríkharðsdóttir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn