
Scott McTominay gæti afar óvænt verið á leið aftur til Manchester United eftir að hafa slegið í gegn hjá Napoli.
Skoski landsliðsfyrirliðinn yfirgaf uppeldisfélag sitt sumarið 2024 og hefur síðan fest sig í sessi sem einn besti miðjumaður Serie A. Hann skoraði 12 mörk í deildinni á síðasta tímabili þegar Napoli varð ítalskur meistari.
Ítalskir miðlar segja United líklegt til að fá McTominay til baka í sumar og er hann sagður dreyma um endurkomu á Old Trafford. Hann ku þó jafnframt vera sáttur á Ítalíu.
McTominay er samningsbundinn Napoli til ársins 2028 og yrði væntanlega ekki ódýr í sumar.