fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sáttur við að fá landsliðskallið – „Ég var bjartsýnn“

Helgi Fannar Sigurðsson
Sunnudaginn 15. febrúar 2026 15:30

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Daníel Hafsteinsson, lykilmaður Íslandsmeistara Víkings, var gestur Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.

Daníel er á leið til Mexíkó á næstunni að spila þar vináttulandsleik með íslenska landsliðinu. Leikurinn er spilaður utan landsleikjaglugga og samanstendur hópurinn að mestu af bestu leikmönnum Bestu deildarinnar.

„Það er alltaf spennandi að fara í svona verkefni, líka í yngri landsliðunum. Þetta er stærra svið og mjög skemmtilegt. Það er geggjað að koma til framandi landa líka,“ sagði Daníel um komandi verkefni.

Daníel átti frábært fyrsta tímabil með Víkingi í fyrra, er liðið landaði Íslandsmeistaratitlinum. Hann hafði því gert sér vonir um að vera í hópnum.

„Klárlega, maður vissi svo sem ekki hvernig hópurinn yrði nákvæmlega upp settur. En ég var alveg bjartsýnn. Það datt í gegn og ég er mjög ánægður.“

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn