

Daníel Hafsteinsson, lykilmaður Íslandsmeistara Víkings, var Gestur Helga Fannars Sigurðssonar í nýjasta þætti af Íþróttavikunni.
Daníel spilaði með Gylfa Þór Sigurðssyni í Víkingi í fyrra og náðu þeir afar vel saman. Í viðtali við 433.is í haust sagði Gylfi að það væri yndislegt að spila með Daníel.
„Það er mjög gott að heyra þetta. Ég get sagt það sama um hann. Ég veit ekki hversu mikið ég á að hrósa honum, hann veit alveg hvað mér finnst um hann.
Hann er besti leikmaður Íslandssögunnar jafnvel. Hann er geggjaður gæi og ótrúlega gott að spila með honum. Hann er geggjaður í klefa en ég vil ekki vera að hrósa honum of mikið,“ sagði Daníel og hló.
Þátturinn er í spilaranum.