fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Bogi ómyrkur í máli – „Þetta er stórkostleg hræsni“

433
Fimmtudaginn 12. febrúar 2026 18:30

Bogi Ágústsson. Mynd: Skjáskot RÚV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bogi Ágústsson, einn ástsælasti fjölmiðlamaður Íslands, vandaði Jim Ratcliffe, eiganda Manchester United, ekki kveðjurnar í Ríkisútvarpinu í morgun.

Ratcliffe sagði innflytjendur og bótaþega vera að knésetja Bretland. Sagði hann níu milljónir manna þiggja bætur og að innflytjendur væru að nýlenduvæða þjóðina. Hefur þetta vakið mikla reiði og forsætisráðherrann Keir Starmer hvatti Ratcliffe til að mynda til að biðjast afsökunar. Hann sagðist gera það, hafi hann sært einhvern.

Meira
Íslandsvinurinn segir bótaþega og innflytjendur að knésetja ríkið – Vill sjá niðurskurð eins og hann fór í

„Í fyrsta lagi eru tómar staðreyndavillur í þessu hjá honum og svo er það þetta orð (nýlenduvæðing), í huga Breta vísar þetta beint til breska heimsveldisins, þar sem Bretar lögðu undir sig stóran part jarðarinnar og gerðu að nýlendu, mergsugu mörg lönd. Sú saga er ekkert sérstaklega falleg mjög víða,“ sagði Bogi í Heimsglugganum á Morgunvakt Rásar 1.

„Þetta er stórkostleg hræsni, fyrir utan staðreyndavillurnar. Það hefðu þrír leikmenn getað spilað síðasta leik Manchester United gegn West Ham ef það væru engir útlendingar,“ benti Bogi jafnframt á, en hann er mikill knattspyrnuáhugamaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn