

Franski varnarmaðurinn Jérémy Jacquet gæti þurft að fara í aðgerð á öxl, sem gæti haft áhrif á lokakafla tímabilsins hjá honum.
Varnarmaðurinn sem Liverpool keypti í síðustu viku frá Rennes meiddist í leik með franska liðinu um helgina og nú er til skoðunar hvort skurðaðgerð sé nauðsynleg til að leysa vandann til lengri tíma.
Ef af aðgerð verður er hætta á að hann missi af stórum hluta þess sem eftir er af tímabilinu.
Liverpool keypti Jacquet fyrir um 60 milljónir punda en hann klárar tímabilið í Frakklandi.
Næstu dagar munu skera úr um framhaldið, en markmiðið er að tryggja að Jacquet nái fullum bata og geti snúið sterkari til baka.