

Jack Grealish hefur staðfest í tilfinningaþrunginni færslu á samfélagsmiðlum að tímabili hans sé lokið eftir að hann fór í aðgerð á fæti.
Enska landsliðsstjarnan, sem er á láni hjá Everton, varð fyrir álagsbroti í vinstri fæti í 1-0 sigri liðsins á Aston Villa í síðasta mánuði. Meiðslin reyndust það alvarleg að hann þurfti að fara í skurðaðgerð og mun því ekki spila meira á tímabilinu.
Grealish birti mynd af sér á sjúkrahúsi eftir aðgerðina og skrifaði. „Ég vildi ekki að tímabilið endaði svona en svona er fótboltinn, ég er miður mín. Aðgerðin er búin og nú fer öll áhersla í að ná mér góðum aftur. Ég veit að ég kem til baka í betra formi, sterkari og betri en áður.“
Meiðslin eru einnig talin slá á möguleika hans á að komast í landsliðshópinn fyrir HM í sumar. Grealish nýtti þó tækifærið til að þakka Everton fyrir stuðninginn.
„Stuðningurinn síðan ég kom til þessa frábæra félags hefur skipt mig miklu máli. Starfsfólkið, liðsfélagarnir og sérstaklega stuðningsmennirnir hafa verið ótrúlegir og ég elska að spila fyrir þetta félag,“ skrifaði hann.
Hann sagðist munu styðja liðið það sem eftir lifir tímabils og vinna hörðum höndum að endurkomu. „Takk fyrir allan kærleikann, það er mér kært,“ bætti hann við.