
Leeds United hyggst stækka Elland Road verulega og auka áhorfendafjölda leikvangsins í 53.000 sæti, eftir að skipulagsyfirvöld í borginni gáfu áformum félagsins grænt ljós. Elland Road hefur verið heimavöllur Leeds frá árinu 1919 og rúmar nú tæplega 38.000 áhorfendur.
Stækkunin felur í sér viðbyggingar við Vestur- og Norðurstúku, auk nokkurra breytinga á Suðurstúku. Verkefnið er talið kosta yfir 150 milljónir punda, en forráðamenn Leeds reikna með að auknar tekjur geti numið allt að 29 milljónum punda á ári þegar framkvæmdum lýkur.
Að lokinni stækkun verður Elland Road meðal tíu stærstu knattspyrnuleikvanga Englands og í UEFA flokki 4, sem setur hann í hóp flottustu leikvanga Evrópu. Leeds myndi þá taka fram úr félögum á borð við Manchester City, Newcastle og Everton hvað stærð varðar.
Framkvæmdir eiga að hefjast að loknu yfirstandandi tímabili og leikvangurinn verður ekki lokaður á meðan á byggingu stendur. Paraag Marathe, stjórnarformaður Leeds United, segir þetta skýrt merki um metnað eigendanna. „Þetta er sögulegur dagur fyrir Leeds United. Við erum staðráðin í að festa félagið í sessi í úrvalsdeildinni og byggja ofan á þann grunn til framtíðar,“ sagði Marathe.
Leeds situr sem stendur í 16. sæti úrvalsdeildarinnar, átta stigum frá fallsæti, og hefur sérstaklega verið sterkt á heimavelli á tímabilinu.
Hér að neðan eru teikningar af fyrirhuguðum breytingum.



