fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Fulham staðfestir kaup á Bobb frá City

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 30. janúar 2026 13:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fulham hefur gengið frá kaupum á kantmanninum Oscar Bobb frá Manchester City á 27 milljónir punda. Bobb, sem varð enskur meistari með City, hefur skrifað undir fimm og hálfs árs samning sem bindur hann við félagið til sumarsins 2031.

Hann mun leika í treyju númer 14.

Í samtali við heimasíðu Fulham sagðist hinn 22 ára gamli Norðmaður spenntur fyrir nýju áskoruninni. „Það er frábært að vera kominn hingað. Ég átti góðan dag þar sem ég hitti alla og ég hlakka mikið til framhaldsins,“ sagði Bobb.

Hann bætti við að hann hefði rætt við góða vini innan félagsins og þjálfarateymið, sem hafi gert ákvörðunina einfalda.

Stjórnarmaðurinn Tony Khan fagnaði komu Bobb og sagði hann spennandi ungan leikmann sem passi vel inn í framtíðarsýn félagsins. Fulham vonast til að Bobb styrki hópinn á seinni hluta tímabilsins og hjálpi liðinu að halda áfram jákvæðri þróun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn