

Jamie Carragher segist þegar orðinn leiður á nýja fyrirkomulagi Meistaradeildarinnar eftir að hafa séð hverja Liverpool gæti dregist gegn í 16-liða úrslitum.
6-0 sigur Liverpool á Qarabağ á Anfield tryggði liðinu þriðja sæti í heildartöflu riðlakeppninnar undir stjórn Arne Slot.
Þrátt fyrir það blasir við að Liverpool gæti mætt stórliðum á borð við Atlético Madrid eða Juventus strax í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.
Carragher lét í ljós gremju sína í Golazo-þætti CBS Sports og benti á að Liverpool hafi einnig fengið erfiðan drátt á síðasta tímabili þrátt fyrir að vinna sinn riðil. „Við enduðum í þriðja sæti og samt erum við mögulega að fá Atlético eða Juventus, þetta meikar engan sens,“ sagði hann en Liverpool datt út gegn PSG í 16 liða úrslitum í fyrra.
Micah Richards minnti hann á að Liverpool væri „stórveldi“, en Carragher svaraði að slíkt ætti ekki að refsa liðinu með svo erfiðum drætti. Hann skaut einnig léttu skoti á Manchester City áður en hann dró orð sín til baka.