
Knattspyrnustjóri Chelsea, Liam Rosenior, hafnar alfarið orðrómum um að Cole Palmer vilji ganga til liðs við Manchester United og segir þá ekki eiga við rök að styðjast.
„Þetta er svo óraunhæft. Þetta er gripið úr lausu lofti og það er ekkert til í þessu. Það er engin ástæða til að ræða þetta. Cole er mjög ánægður hér. Ég hef rætt oft við hann og hann vill vera leikmaður Chelsea,“ segir Rosenior.
„Nýr stjóri kemur inn og allt í einu eru leikmenn sagðir óánægðir. Þetta er einfaldlega ekki rétt. Cole er hér, hann er sáttur og ég hlakka til að sjá hann aftur á vellinum.“
Palmer hefur verið lykilmaður fyrir Chelsea síðan hann kom 2023 frá Manchester City en hefur verið að glíma mikið við meiðsli á yfirstandandi leiktíð.