fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Mikil reiði í Hafnarfirði eftir tíðindi gærdagsins og leikmenn sagðir í áfalli – „Skammast mín“

433
Miðvikudaginn 28. janúar 2026 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Böðvar Böðvarsson má róa á önnur mið þar sem Jóhannes Karl Guðjónsson, nýr þjálfari FH, sér ekki not fyrir hann, en þetta segir hann í samtali við Fótbolta.net. Hefur þetta vakið reiði stuðningsmanna.

Böðvar er uppalinn hjá félaginu og hefur aðeins leikið með því hér heima, auk þess að spila í Póllandi og Svíþjóð. Hann er einn reynslumesti leikmaður Fimleikafélagsins og hefur verið algjör lykilmaður.

„Böddi er FH. Sem FH-ingur að þá skammast ég mín. FH er í hafinu á svo mörgum stöðum. Böddi stýrir klefanum og er fyrirmyndin þarna. Leikmenn eru í sjokki,“ skrifar Magnús Haukur Harðarson, fótboltaþjálfari, sparkspekingur og glerharður stuðningsmaður FH, á X.

Fleiri stuðningsmenn taka undir með Magnúsi. „Frábært að sjá framkomu aðkomumannsins Jóa Kalla í garð uppalins leikmanns sem átti að taka við fyrirliðabandinu og er með elstu mönnum í liðinu…leikmaður sem gefur alltaf 110% fyrir FH! Helvíti líklegt að þetta fari vel í stuðningsmenn FH,“ segir Guðlaugur Valgeirsson til að mynda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn