
FH fær 25 milljónir punda fyrir söluna á Sigurði Bjarti Hallssyni til Merida AD á Spáni.
Sigurður Gísli Bond segir frá þessu í Dr. Football, en skiptin voru staðfest í dag. Merida leikur í spænsku C-deildinni.
Sigurður kemur til Merida eftir að hafa varið öllum ferli sínum hingað til á Íslandi. Hann lék meðal annars með KR og Grindavík, áður en hann gekk til liðs við FH á síðasta tímabili.
Þar vakti hann mikla athygli með frammistöðu sinni, skoraði 17 mörk og lagði upp tvö til viðbótar.