fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
433Sport

Sveinn Guðjohnsen riftir samningi sínum í Noregi

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 26. janúar 2026 20:03

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sarpsborg 08 og Sveinn Aron Guðjohnsen hafa komist að samkomulagi um að ljúka samstarfi sínu og rifta samningi.

Þetta staðfestir félagið í tilkynningu, þar sem Hampus Andersson, íþróttastjóri Sarpsborg 08, þakkar Sveini fyrir framlag hans. „Við viljum þakka Sveini Guðjohnsen fyrir tímann hjá Sarpsborg 08. Eftir góð og uppbyggileg samtöl komumst við að þeirri niðurstöðu að það væri best fyrir báða aðila að halda áfram hvor sína leið,“ segir Andersson.

Sveinn gekk til liðs við norska félagið og lék alls 33 leiki í öllum keppnum í treyju Sarpsborg 08. Á þeim tíma skoraði hann tíu mörk og lagði upp tvö til viðbótar.

Óvíst er hvert Sveinn heldur næst, en með reynslu sína úr norska boltanum og markheppni ætti hann að vera áhugaverður kostur fyrir mörg félög.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Í gær

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Í gær

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Í gær

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð