
Of margir skallaðir boltar sem leiddu til heilabilunar drógu Gordon McQueen, fyrrverandi leikmann Manchester United og skoska landsliðsins, líklega til dauða, eftir því sem kemur fram í niðurstöðu rannsóknar á andláti hans.
McQueen lést árið 2023, 70 ára að aldri, eftir að hafa glímt við heilabilun og CTE-heilasjúkdóminn. Samspil þessa þátta leiddi til lungnabólgu sem var skráð dánarorsök fyrrverandi leikmannsins.
McQueen lék nærri 350 leiki á ferlinum fyrir St Mirren, Leeds og Manchester United á árunum 1970–1985, auk 30 landsleikja fyrir Skotland. Hann starfaði síðar sem þjálfari.
Dóttir hans, Hayley McQueen, sagði að faðir hennar hefði elskað fótboltann en að sjúkdómurinn hafi tekið hann að lokum. Hún hvetur knattspyrnuyfirvöld til að gera meira til að draga úr skallaboltum, sérstaklega í yngri flokkum.
Rannsóknir hafa sýnt að knattspyrnumenn eru margfalt líklegri til að þróa með sér taugahrörnunarsjúkdóma en almenningur, sérstaklega varnarmenn.