fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Gjörbreytt staða Mainoo og má búast við að viðræður hefjist brátt

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 23. janúar 2026 18:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hyggst hefja á ný samningaviðræður við miðjumanninn Kobbie Mainoo um nýjan samning sem myndi færa honum væna launahækkun. Núverandi samningur Mainoo rennur út árið 2027, með möguleika á eins árs framlengingu.

Engar formlegar viðræður hafa enn átt sér stað og óljóst er hversu opinn þessi tvítugi leikmaður er fyrir að skrifa undir. Mainoo hafði í sumar lýst yfir vilja til að fara á láni eftir að hafa lítið fengið að spila undir stjórn Ruben Amorim, sem var með hann í frystinum.

Eftir brottför Amorim hefur staða Mainoo þó breyst. Hann var í byrjunarliði Darren Fletcher í bikarleiknum gegn Brighton og hélt sæti sínu í fyrsta leik Michael Carrick sem stjóri, þegar United lagði Manchester City um síðustu helgi.

2024 var talið að Mainoo myndi skrifa undir stóran samning eftir að hafa verið í lykilhlutverki undir stjórn Erik ten Hag. Allt breyttist þó með komu Amorim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn