fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Undirstrikar ótrúlegan styrk ensku úrvalsdeildarinnar

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 22. janúar 2026 17:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigrar Liverpool og Chelsea í Meistaradeild Evrópu í gær hafa skapað fordæmalausa stöðu fyrir ensk félög í keppninni, en vakin er athygli á þessu í erlendum miðlum í dag.

Liverpool vann öruggan 3-0 sigur á Marseille á Stade Velodrome. Chelsea vann þá 1-0 sigur á Pafos á Stamford Bridge.

Með sigrunum eru bæði félög komin í efstu átta sæti keppninnar, sem tryggir beint sæti í 16-liða úrslitum. Þar eru þau í félagsskap Arsenal, sem hefur unnið alla sjö leiki sína, auk Tottenham og Newcastle.

Manchester City er sem stendur utan efstu átta eftir óvænt 3-1 tap gegn Bodo/Glimt, en getur enn tryggt sér beint sæti í 16-liða úrslitum með sigri á Galatasaray í lokaumferðinni. City er þó þegar búið að tryggja sér sæti í umspili.

Alls hafa sex ensk lið tryggt sér sæti í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar, sem hefur aldrei gerst áður og undirstrikar yfirburði ensku úrvalsdeildarinnar.

Staðan er þó afar jöfn og lokaumferðin næsta miðvikudag gæti hrist verulega upp í töflunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn