
Mikil reiði skapaðist í velska boltanum eftir að leikmaður Trearddur Bay sást gefa andstæðingi sínum harkalegt olnbogaskot í leik gegn Porthmadog í Ardal North West-deildinni. Atvikið náðist á myndband sem tekið var frá hliðarlínunni og hefur farið hratt í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Atvikið átti sér stað á 59. mínútu þegar Porthmadog fékk dæmda vítaspyrnu. Á myndbandinu sést leikmaður Trearddur Bay, Tom Taylor, slá kantmann Porthmadog, Danny Brookwell. Brookwell féll til jarðar og slagsmál brutust út.
Trearddur Bay hefur staðfest að Taylor hafi verið rekinn tafarlaust og lögreglan í Norður-Wales hefur handtekið hann fyrir líkamsárás.
Porthmadog vann leikinn að lokum 3-2, en umrætt atvik var það sem stal senunni og margir kalla eftir því að Taylor fái lífstíðarbann frá knattspyrnuvellinum.
Trearddur Bay Football Club have terminated their contract with a player following an ‘on field incident’ during their game with Porthmadog FC – @NWPolice have arrested the 35 year old man on suspicion of assault & he remains in police custody whilst their enquiries are ongoing! pic.twitter.com/zTdHtSLbmu
— Aaran Lennox (@aaranlennox) January 18, 2026