
Juventus vonast enn til að landa Federico Chiesa frá Liverpool í þessum mánuði.
Ítalski Calciomercato heldur þessu fram, en Chiesa hefur verið reglulega orðaður við endurkomu til Juventus undanfarið.
Sjálfur ku Chiesa vera opinn fyrir skiptum og til í að taka á sig launahækkun, enda ekki í stóru hlutverki undir stjórn Arne Slot á Anfield.
Hingað til hefur Juventus ekki viljað ganga að kröfum Liverpool en talið er að hugsanlegt sé að Chiesa verði keyptur á um 13 milljónir punda fyrir gluggalok um mánaðarmótin.