
Sol Campbell, goðsögn Arsenal, telur að Unai Emery, fyrrum stjóri liðsins og nú stjóri Aston Villa, sé rétti maðurinn fyrir Manchester United.
Michael Carrick tók við United á dögunum af Ruben Amorim, sem var rekinn. Hann verður þó aðeins út þessa leiktíð og leitar United að manni til að taka við til frambúðar næsta sumar.
„United þarf einhvern sem getur róað hlutina á bak við tjöldin og sýnt stuðningsmönnum að liðið sé í öruggum höndu. Einhver sem skilur fótbolta eins og Unai Emery hjá Vila, hann er möguleiki. Hann hefur breytt Aston Villa úr fallbaráttu- í toppbaráttulið,“ segir Campbell, en eins og hann bendir á hefur Emery gert frábæra hluti með Villa.
„Ef Jurgen Klopp hefði ekki verið hjá Liverpool hefði hann verið fullkominn. Hann kemur auðvitað ekki. Ég get líka séð Thomas Tuchel taka við,“ segir Campbell enn fremur.