
Declan Rice vakti athygli í sigri Arsenal gegn Chelsea, 3-2, í fyrri leik liðanna í undanúrslitum enska deildabikarsins á Stamford Bridge, en hann virtist lenda í heitum orðaskiptum við aðstoðarþjálfara liðsins, Albert Stuivenberg, í hálfleik.
Myndband sem birtist á samfélagsmiðlum eftir leik sýndi Rice og Stuivenberg ræða saman, ekki á sérlega vinalegum nótum, í leikmannagöngunum. Varnarmaðurinn Gabriel steig inn í aðstæðurnar.
Ósættið virðist þó ekki hafa varað lengi, en Rice faðmaði Stuivenberg þegar hann var tekinn af velli á 82. mínútu og Kai Havertz kom inn á.
Myndband af þessu er hér að neðan.
Declan Rice and Albert Stuivenberg pic.twitter.com/csLGZddcjI
— Othman (@othmantactics) January 15, 2026