

Xabi Alonso er orðinn líklegur í ensku úrvalsdeildinni eftir að hann lét af störfum hjá Real Madrid.
Alonso tók við Real í maí eftir að Carlo Ancelotti samþykkti að verða næsti landsliðsþjálfari Brasilíu og yfirgaf þá Bayer Leverkusen.
Dvöl Alonso hjá Real varð þó stutt. Fljótlega fóru að berast fregnir af því að leikmenn væru ekki að bregðast vel við aðferðum hans og eftir 34 leiki lauk ævintýrinu .
Daginn eftir tap gegn Barcelona í spænska Ofurbikarnum staðfesti Real brottför Alonso með yfirlýsingu, þar sem kom fram að ákvörðunin væri tekin í sameiningu og að Alonso yrði ávallt metinn sem goðsögn félagsins.
Alonso þakkaði félaginu, leikmönnum og stuðningsmönnum fyrir traustið og sagði það mikinn heiður að hafa þjálfað Real Madrid.
Samkvæmt veðmálafyrirtækinu Betano er Alonso nú helsti kandídatinn til að taka við Tottenham Hotspur af Thomas Frank sem er valtur í sessi, með líkurnar 4/1. Oliver Glasner er næstur á lista með 5/1, Marco Silva með 6/1 og Enzo Maresca með 8/1. Mauricio Pochettino er einnig nefndur til sögunnar með 16/1 líkur á endurkomu.