

Knattspyrnustjóri Chelsea, Liam Rosenior, hefur greint frá því að hann hafi átt ítarlegt persónulegt samtal við Cole Palmer og útskýrt hvers vegna það væri brjálæði að taka áhættu á að leikmaðurinn meiddist aftur.
Palmer hefur átt í erfiðleikum með bæði form og heilsu á tímabilinu og hefur aðeins leikið 11 leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Hann hefur aðeins lokið heilum leik einu sinni síðan hann sneri aftur í byrjun desember eftir tæplega þriggja mánaða meiðsli. Skiptingar hans í nokkrum leikjum hefur valdið óánægju meðal stuðningsmanna Chelsea, meðal annars þegar hann var tekinn af gegn Bournemouth, auk þess sem Palmer sýndi sjálfur gremju eftir skiptingu gegn Aston Villa.
Rosenior sagði að hann hefði einnig rætt stöðuna ítarlega við læknateymi félagsins.
„Við erum að fara inn í tímabil þar sem við spilum átta leiki á þremur vikum,“ sagði hann.
„Það væri algjörlega galið að taka áhættu með leikmenn á þessum tímapunkti tímabilsins,“ bætti hann við, í aðdraganda undanúrslitaleiks Chelsea gegn Arsenal í deildabikarnum.