
Það er algjört forgangsmál hjá Liverpool að sækja miðvörð í sumar, segir David Ornstein, einn virtasti blaðamaður Bretlands, en hann starfar hjá The Athletic.
Samningur Ibrahima Konate rennur út í sumar og stefnir í að hann fari frítt frá Anfield. Þá eiga Virgil van Dijk og Joe Gomez tæpa 18 mánuði eftir af sínum samningum og er sá fyrrnefndi á leið niður hæðina.
Ekki er víst hvaða miðvörð eða miðverði Liverpool tekur inn í sumar, en Marc Guehi hjá Crystal Palace hefur verið sterklega orðaður við félagið.
Var hann næstum kominn síðasta sumar, áður en Palace hætti við að sleppa fyrirliðanum á síðustu stundu. Hann verður hins vegar samningslaus næsta sumar og getur þá farið frítt, en hann hefur einnig verið orðaður við Arsenal og Manchester City.
Ornstein fjallar einnig um framtíð Mohamed Salah eftir fjaðrafok í kringum hann fyrir áramót. Hann er sem stendur í Afríkukeppninni með egypska landsliðinu. Hann var ósáttur við spiltíma sinn á Anfield og sagði frá því í eftirminnilegu viðtali eftir leik við Leeds.
Ornstein segir þó að búast megi við að hann klári tímabilið hjá Liverpool og jafnframt að það sé stefna félagsins að hann verði þar út næstu leiktíð, en samningur hans rennur út þarnæsta sumar.