
Manchester United hefur staðfest ráðninguna á Michael Carrick sem bráðabirgðastjóra út leiktíðina.
Fréttirnar hafa legið í loftinu en Carrick vann baráttuna við Ole Gunnar Solskjær um starfið. Báðir eru fyrrum leikmenn United.
Carrick var áður í teymi United undir stjórn Jose Mourinho og síðar Ole Gunnar Solskjær. Tók hann við sem bráðabirgðastjóri um stutt skeið eftir að Solskjær var rekinn 2021.
Ruben Amorim var rekinn frá United á dögunum eftir slakt gengi og stríð við yfirmenn sína. United situr í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 32 stig, úr leik í báðum bikarkeppnunum og ekki í Evrópukeppni.
„Að fá að leið Manchester United er heiður. Ég veit hvað þarf til að ná árangri hér. Einbeiting mín fer á að hjálpa leikmönnum að ná þeim hæðum sem ætlast er til hjá þessu ótrúlega félagi, sem við vitum að er vel hægt.
Það er að miklu að berjast á þessari leiktíð. Við munum allir koma saman og gefa stuðningsmönnum þær frammistöður sem þeir eiga skilið að sjá,“ er meðal annars haft eftir Carrick í yfirlýsingu félagsins.
Michael Carrick is back 🤝
Our former captain is our Head Coach for the remainder of 2025/26 🔴
— Manchester United (@ManUtd) January 13, 2026