

Wayne Rooney hefur lýst yfir fullum stuðningi við Michael Carrick og telur að hann geti fært anda Manchester United aftur á Old Trafford.
Jafnframt hefur Rooney greint frá því að hann sé reiðubúinn að ganga til liðs við þjálfarateymi Carricks, ef til þess kæmi.
Manchester United var í gærkvöldi að ganga frá samningi við Carrick, 44 ára, um að taka við starfi tímabundins knattspyrnustjóra. Rooney, sem er markahæsti leikmaður í sögu félagsins með 253 mörk, segir félagið hafa misst sjálfsmynd sína á undanförnum árum.
„Félagið hefur misst sitt DNA, þetta fjölskyldulega andrúmsloft sem einkenndi Manchester United. Þetta er tækifæri til að byggja það upp aftur og færa anda United til baka,“ sagði Rooney.
Þegar hann var spurður hvort hann myndi vilja starfa með Carrick til sumarsins svaraði hann: „Auðvitað, það er ekkert flókið við það. Ég er ekki að betla mér vinnu, en ef ég yrði beðinn um að koma inn þá myndi ég gera það hiklaust.“
United ræddi einnig við fyrrverandi knattspyrnustjóra sinn Ole Gunnar Solskjær um helgina, en Carrick var þá þegar orðinn efstur á blaði.
Jonathan Woodgate, fyrrum varnarmaður Leeds og Real Madrid og aðstoðarþjálfari Carrick hjá Middlesbrough, er sagður eiga að vera í teyminu.
Rooney bætti við. „Michael er mjög klár einstaklingur og hefur mikla þekkingu á leiknum.“