
Guðmundur Þórarinsson er búinn að rifta samningi sínum við Noah í Armeníu og er á leið til Íslands.
Fjölmiðlamaðurinn Ríkharð Óskar Guðnason segir frá þessu. Guðmundur, sem er 33 ára gamall, vill flytja með fjölskyldu sína til Íslands eftir farsæl ár í atvinnumennsku.
Hann gekk í raðir Noah fyrir síðustu leiktíð. Um er að ræða eitt besta lið Armeníu. Varð Íslendingurinn meistari með því í fyrra og hefur spilað í Sambandsdeildinni bæði tímabilin.
Nú heldur Guðmundur hins vegar heim á leið og verður áhugavert að sjá hjá hvaða liði hér á landi hann skrifar undir.
Guðmundur hefur á ferlinum leikið í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Bandaríkjunum og Grikklandi, auk Armeníu.
Varð hann landsmeistari í Noregi og Bandaríkjunum, sem og í Armeníu eins og áður sagði. Á hann að baki 15 A-landsleiki.
Gummi Tóta og FC Noah hafa komist að samkomulagi að enda samninginn að frumkvæði Guðmundar sem vill flytja heim með fjölskylduna sína til frambúðar.
Gummi Tóta snýr heim eftir 12 góð ár samfleytt í atvinnumennsku þar sem hann vann fjölda titla.
GT myndi styrkja öll lið í Bestu.— Rikki G (@RikkiGje) January 13, 2026