
Manchester United hefur ekki spilað færri leiki á einu tímabili í 111 ár, en þetta varð ljóst með tapi liðsins í enska bikarnum í gær.
United tapaði gegn Brighton í gær og féll þar með úr leik í fyrsta leik sínum í bikarnum. Liðið féll einnig úr leik í fyrsta leik sínum í deildabikarnum í haust, gegn D-deildarliði Grimsby.
United komst ekki í Evrópukeppni fyrir þessa leiktíð og þar með er ljóst að liðið spilar aðeins 40 leiki á þessari leiktíð.
Liðið hefur ekki spilað færri leiki frá því á tímabilinu 1914-1915. Þá lék það 39 leiki.
United er í stjóraleit. Darren Fletcher hefur stýrt liðinu í undanförnum tveimur leikjum en miðað við nýjustu fréttir er Michael Carrick að taka við út tímabilið, áður en stjóri verður ráðinn til frambúðar í sumar.