
Þorleifur Úlfarsson er á leið frá Breiðabliki aftur til Bandaríkjanna. Hrafnkell Freyr Ágústsson segir frá þessu í Dr. Football.
Sóknarmaðurinn kom heim úr atvinnumennsku síðasta vor og gekk í raðir Blika. Hann spilaði ekki fyrr en í lok móts vegna meiðsla en kom þá við sögu í þremur leikjum eftir tvískiptingu í Bestu deildinni og tveimur í Sambandsdeildinni.
Þorleifur sló í gegn í háskólaboltanum vestan hafs og fékk svo samning hjá Houston Dynamo í MLS-deildinni í kjölfarið. þaðan hélt hann til Debrecen 2024, áður en hann gekk svo í raðir uppeldisfélagsins, Blika, á ný.
Þessi 25 ára gamli leikmaður reynir nú fyrir sér erlendis á ný ef marka má þessar nýju fréttir.