
Darren Fletcher, bráðabirgðastjóri Manchester United, gagnrýndi harðlega dómgæslu Simon Hooper eftir að hinn 18 ára gamli Shea Lacey var rekinn af velli í 2-1 tapi liðsins gegn Brighton í þriðju umferð enska bikarsins á Old Trafford.
Brighton tryggði sér sigurinn með mörkum Brajan Gruda og Danny Welbeck, en varamaðurinn Benjamin Sesko minnkaði muninn seint í leiknum og gaf United von.
Sú von hvarf þó fljótt þegar Lacey, sem Fletcher setti inn á í leit að jöfnunarmarki, fékk tvö gul spjöld á tveimur mínútum. Fyrra spjaldið kom fyrir brot, en það síðara fyrir að kasta boltanum í jörðina pirraður.
Fletcher átti í orðaskiptum við dómarateymið eftir leik og fékk sjálfur gult spjald. Í viðtali eftir leik sagði hann að Lacey hefði alls ekki átt að fá fyrra gula spjaldið og að dómgæslan hefði verið ósanngjörn í garð United.
„Fyrra gula spjaldið á Shea Lacey var alls ekki gult. Ég skil ekki hvernig Brighton fékk ekki fleiri gul spjöld í fyrri hálfleik. Gula spjaldið hans Shea er fáránlegt miðað við brotin þeirra á okkur allan leikinn,“ sagði Fletcher.
Fletcher sagði þó að Lacey myndi læra af reynslunni. „Hann er vonsvikinn því honum er ekki sama. Hann lærir af þessu, en hæfileikarnir eru óumdeildir.“
Þetta var líklega síðasti leikur Fletcher við stjórnvölinn. Nú virðist líklegast að Michael Carrick verði ráðinn út tímabilið, en enskir miðlar segja hann vera að vinna kapphlaupið við Ole Gunnar Solskjær um starfið.