
Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson, sem stýra hlaðvarpinu og vefsíðunni Handkastið, voru gestir Helga Fannars í Íþróttavikunni á 433.is og hituðu upp fyrir EM í handbolta en ræddu fótboltann einnig.
Liam Rosenior var ráðinn nýr stjóri Chelsea á dögunum. Tók hann við af Enzo Maresca. Rosenior er ekki mjög þekktur í knattspyrnuheiminum, en hann stýrði systurliði Chelsea, Strasbourg.
„Það er bara verið að ráða einhvern gaur sem þeir geta liggur við stýrt. Chelsea var alltaf með djöfulsins kanónur á hliðarlínunni. Hvert er fótboltinn kominn þegar svona gæi fær þetta tækifæri og það er samið við hann til 2032?“ sagði Styrmir ómyrkur í máli.
„Maður horfir á hann og það öskrar á mann að hann verði farinn fyrir vorið,“ skaut Helgi þá inn í áður en Styrmir tók til máls á ný.
„Þessi þróun fótboltans minnir mig á þegar það var í tísku að vera í opnu skrifstofurými. Nú eru allir í sama rýminu, engar hurðar og þú getur labbað til yfirmannsins. Þetta eru bara einhverjir yfirmenn fótboltamála að skoða tölfræði ofan á tölfræði.“
Þátturinn í heild er í spilaranum.