fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Hitnaði í kolunum í beinni útsendingu – „Þetta kalla ég hrútskýringar“

433
Sunnudaginn 3. maí 2026 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jóhann Skúli Jónsson, gjarnan kallaður Jói Skúli, var gestur Helga Fannars í nýjasta þætti af Íþróttavikunni og með þeim var einnig Hörður Snævar Jónsson.

Arsenal er í góðri stöðu í undanúrslitum Meistaradeildarinnar eftir 1-1 jafntefli gegn Atletico Madrid á útivelli í fyrri leiknum.

Mörgum þykir hitt undanúrslitaeinvígið, milli PSG og Bayern Munchen, sterkara.

„Leiðinlegt að segja þér það en Arsenal tapar alltaf úrslitaleiknum ef þeir komast þangað,“ sagði Hörður við Helga, sem er stuðningsmaður Skyttanna.

video
play-sharp-fill

„Úrslitaleikur er bara úrslitaleikur, það getur allt gerst þar,“ svaraði Helgi hins vegar áður en Hörður tók til máls á ný.

„Það er bara svo mikill gæðamunur á þessum liðum,“ sagði hann. „Ég held það sé þreytumunur meira. Þú sást þegar Arsenal mætti Bayern í haust,“ sagði Helgi, en Arsenal vann Bayern 3-1 í nóvember.

„Bayern eru raðsigurvegarar, þeir vita að það vinnst ekkert á haustin,“ sagði Hörður þá.

„Það er annað að spila í sprellideildum þar sem þú getur hvílt eins og þú vilt og fengið leikjum frestað,“ sagði Helgi og á þar við þegar PSG fékk mikilvægum leik í frönsku deildinni frestað á dögunum fyrir leik gegn Liverpool í Meistaradeildinni.

„Fyrir mér eru þetta hrútskýringar,“ sagði Hörður að endingu um málið, léttur í bragði, og uppskar mikinn hlátur.

Nánar í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Tilkynnir að hún sé að hætta með tilfinningaþrungnu myndbandi

Tilkynnir að hún sé að hætta með tilfinningaþrungnu myndbandi
433Sport
Í gær

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid

Efstur á blaði ef Mourinho fer til Real Madrid
433Sport
Í gær

Eru með verðmiða í huga og ætla ekki í neitt stríð ef það verður

Eru með verðmiða í huga og ætla ekki í neitt stríð ef það verður
433Sport
Í gær

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar
433Sport
Í gær

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“

Þetta er það sem stjörnurnar virðast spá mest í þegar þær koma til Íslands – „Maður er bara vanur því“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“

Jóhann ómyrkur í máli – „Mér finnst þetta bara líta virkilega illa út“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal

Stefnir í harða baráttu á milli United og Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Vonast eftir því að Tottenham falli – Sagðir með samkomulag við leikmann þeirra

Vonast eftir því að Tottenham falli – Sagðir með samkomulag við leikmann þeirra
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM

Fyrirliðinn gagnrýnir Trump og FIFA rétt áður en hann mætir á HM
Hide picture