fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
433Sport

Heimsfrægur áhrifavaldur kemur öllum á óvart með tilkynningu sinni

433
Föstudaginn 13. mars 2026 08:30

Ivana Knoll

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samfélagsmiðlastjarnan Ivana Knoll hefur greint frá því að hún muni koma fram sem plötusnúður á vináttulandsleik Króatíu og Kólumbíu síðar í mánuðinum.

Knoll vakti mikla athygli á áhorfendapöllunum á HM 2018 og 2022 þar sem hún studdi Króatíu og var mjög áberandi. Hún hefur síðan byggt upp stóran fylgjendahóp á samfélagsmiðlum og er með tæplega þrjár milljónir fylgjenda á Instagram.

Undanfarið hefur hún einnig haslað sér völl sem plötusnúður undir listamannsnafninu KnollDoll og komið fram víða í Evrópu, Miðausturlöndum og Norður-Ameríku.

Nú hefur hún fengið það hlutverk að spila í hálfleik á vináttuleik liðanna sem fer fram 26. mars á Camping World-leikvanginum.

„Draumur að rætast. Að fá að koma fram fyrir landið mitt hefur alltaf verið stærsti draumurinn,“ skrifaði Knoll á samfélagsmiðlum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum

Telur að Manchester United geti unnið deildina á næstu árum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Ein fegursta kona heims slasaði sig – „Einn versti sársauki sem ég hef fundið“

Ein fegursta kona heims slasaði sig – „Einn versti sársauki sem ég hef fundið“