

Sigurbjörn Hreiðarsson og Jóhann Már Helgason voru gestir Helga Fannars Sigurðssonar í Íþróttavikunni. Þar var rýnt í Bestu deild karla, sem hefst eftir um sex vikur.
Lið Íslandsmeistara Víkings er ógnarsterkt og flestir eru á því að það verji titilinn. Sigurbjörn, sem hefur sjálfur auðvitað gríðarlega reynslu sem leikmaður og þjálfari, telur að liðið geti farið langt í Evróu einnig, til þess sé þó mikilvægast að hafa málin utan vallar upp á tíu.
„Ef Kári (Árnason, yfirmaður knattspyrnumála) splæsir í beint flug í hvern útileik og heim aftur, þá eiga þeir séns. Það er ekkert mál fyrir mann í þokkalegu standi að spila tvo leiki í viku.
Málið er bara þetta blessaða ferðalag. Það situr vel í mönnum þegar þú þarft kannski að færa hópinn í 4-5 pörtum daginn eftir einhvern leik. Á meðan við erum í þessu er það töluvert erfiðara heldur en fyrir lið með meira budget og slíkt,“ sagði Sigurbjörn.
Umræðan er í spilaranum.