fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Falleg skilaboð Ronaldo til Lindsey Vonn vekja mikla athygli

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnugoðsögnin Cristiano Ronaldo hefur sent hlý skilaboð til skíðadrottningarinnar Lindsey Vonn eftir að hún slasaðist alvarlega á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó.

Vonn, sem er 41 árs og keppir fyrir Bandaríkin, lenti í skelfilegu falli þegar hún missti stjórn á sér og rakst á stöng á leið sinni niður brekkuna. Hún öskraði af sársauka og var flutt með þyrlu á sjúkrahús þar sem í ljós kom að hún hafði brotið fót og ökkla illa.

Í kjölfarið fór hún í nokkrar aðgerðir og þurfti ein þeirra að tryggja að hún héldi fætinum. Nú hefur hún verið útskrifuð af sjúkrahúsi, en fram undan er löng og erfið endurhæfing.

Ronaldo sendi henni hvetjandi skilaboð á samfélagsmiðlum þar sem hann hrósaði styrk hennar og baráttuanda. „Meistarar skilgreinast ekki aðeins af sigrum heldur einnig þeim augnablikum þegar þeir gefast ekki upp,“ skrifaði Portúgalinn.

Þá lét Zlatan Ibrahimović einnig til sín taka og hvatti Vonn áfram með orðunum. „Að gefast upp er ekki valkostur.“

Skilaboðin hafa veitt Vonn aukinn kraft á erfiðum tíma og sýna stuðning stórstjarna úr íþróttaheiminum við hana eftir slysið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn