fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
433Sport

Carragher hjólar aðeins í þrjá af eldri leikmönnum Liverpool og talar um rán

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 13:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jamie Carragher, fyrrum varnarmaður Liverpool og núverandi sparkspekingur, gagnrýndi Mohamed Salah og Cody Gakpo harðlega eftir nauman 1-0 sigur liðsins gegn Nottingham Forest á útivelli.

Liverpool virtist vera að missa dýrmæt stig í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu, en Alexis Mac Allister tryggði liðinu dramatískan sigur með marki á 97. mínútu.

Carragher var langt frá því að vera sáttur við frammistöðu liðsins á City Ground og sagði hana meðal þeirra verstu sem hann hefði séð frá Liverpool á tímabilinu. Hann hrósaði hins vegar unga leikmanninum Rio Ngumoha, sem kom inn á sem varamaður á 77. mínútu.

„Þetta er eitt mesta rán sem ég hef séð í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili,“ sagði Carragher á Sky Sports.

„Ngumoha kom inn á og gerði meira á 15 mínútum en Salah og Gakpo gerðu allan leikinn. Hann breytti leiknum og á að vera í byrjunarliðinu héðan í frá.“

Carragher beindi einnig spjótum sínum að Curtis Jones og sagði hann taka of margar snertingar á boltanum.

„Þetta hefur verið vandamál hjá honum allan hans feril hjá Liverpool. Hann vill alltaf hafa of mikinn tíma á boltanum og þarf að vera beittari,“ bætti Carragher við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Í gær

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Í gær

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Í gær

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð