

Alan Shearer telur að framtíð Mikel Arteta hjá Arsenal gæti verið í hættu takist liðinu ekki að vinna ensku úrvalsdeildina á þessu tímabili.
Arsenal er í toppbaráttunni en varð fyrir áfalli þegar liðið missti niður 2-0 forystu gegn Wolves og gerði jafntefli á síðustu stundu. Úrslitin hafa aukið pressuna á liðið, sérstaklega þar sem Manchester City andar í hálsmálið.
Shearer segir að þetta sé raunverulegt próf fyrir Arteta og hans menn. „Þeir vinna þetta líklega enn, en þetta verður ekki auðvelt. Ég bjóst aldrei við að Arsenal myndi gera þetta á einfaldan hátt,“ sagði hann.
Hann telur að viðbrögðin í næsta leik, gegn Tottenham, skipti miklu máli. „Það væri frábært svar að fara á útivöll og vinna nágrannaslaginn,“ bætti hann við.
Shearer var þó hreinskilinn um stöðu Arteta. „Ef hann vinnur ekki deildina gæti hann misst starfið. Eftir öll þessi tækifæri og annað sætið síðustu ár, með þá fjármuni sem félagið hefur eytt, þá verða þeir að vinna titilinn.“
Hann nefndi einnig að Meistaradeildin gæti reynst Arsenal „auðveldari hindrun“ andlega séð, miðað við reynsluna úr deildinni undanfarin ár.