fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
433Sport

Búnir að taka ákvörðun um Sancho

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur tekið endanlega ákvörðun um framtíð Jadon Sancho og hyggst ekki virkja eins árs framlengingar­ákvæði í samningi hans.

Samkvæmt enskum miðlum vilja Rauðu djöflarnir losna við 200 þúsund punda vikulaun leikmannsins og eru tilbúnir að leyfa honum að fara frítt í sumar.

Sancho, sem er 25 ára, er á láni hjá Aston Villa en hefur átt erfitt uppdráttar á Villa Park. Hann hefur aðeins byrjað sex leiki í ensku úrvalsdeildinni og er enn án marks þar á leiktíðinni. Eina mark hans fyrir Villa kom í Evrópudeildinni.

United keypti Sancho á 73 milljónir punda árið 2021 en hann skoraði 12 mörk í 83 leikjum fyrir félagið og hefur því ekki staðið undir væntingum.

Unai Emery, knattspyrnustjóri Villa, hefur þó hrósað leikmanninum að undanförnu og útilokar ekki að félagið reyni að semja við hann til frambúðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Í gær

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Í gær

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Í gær

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð