fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Tottenham búið að finna stjóra – Igor Tudor stýrir liðinu út tímabilið

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 13. febrúar 2026 13:51

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tottenham Hotspur hefur náð munnlegu samkomulagi við Igor Tudor um að hann taki við sem bráðabirgðastjóri liðsins út tímabilið. Athletic segir frá.

Tudor, sem er 47 ára Króati, er sagður munu skrifa undir samning sem gildir til loka leiktíðar og felur ekki í sér ákvæði um varanlega ráðningu. Tottenham er því áfram á höttunum eftir langtímalausn í stjórastólnum, en Tudor mun stýra liðinu næstu mánuði.

Hann kemur inn með töluverða reynslu eftir að hafa stýrt stórum félögum í Evrópu og starfað bæði sem aðalþjálfari og aðstoðarþjálfari á hæsta stigi. Sú reynsla er talin hafa vegið þungt í ráðningarferlinu.

Samkvæmt Athletic var ferlið leitt af framkvæmdastjóranum Vinai Venkatesham og yfirmanni knattspyrnumála, Johan Lange. Tottenham hefur verið án stjóra eftir að Thomas Frank var rekinn í vikunni.

Markmiðið með ráðningu Tudor er að skapa stöðugleika til skamms tíma og ná sem bestum úrslitum út tímabilið á meðan félagið undirbýr ráðningu á varanlegum stjóra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af

Davíð Þór segir aðstæður hafa verið hættulegar í Árbænum – Helgi Mikael neitaði að flauta leikinn af
433Sport
Fyrir 2 dögum

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða

Norwich seldi leikmann á yfir þrjá milljarða
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið

Byrjaðir að skoða markverði fyrir sumarið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn

Umboðsmaður Rashford mættur til að funa og leysa hnútinn