
Liverpool er á meðal áhugasamra félaga um Zeki Celik, hægri bakvörð Roma, fyrir sumarið.
Þetta kemur fram í ítölskum miðlum og þar segir jafnframt að Inter og Juventus vilji freista þess að halda Celik innan Ítalíu.
Samningur hins 27 ára gamla Celik við Roma rennur út í sumar og verður hann þá fáanlegur á frjálsri sölu.
Um er að ræða tyrkneskan landsliðsmann sem hefur verið á mála hjá Roma síðan 2022. Hann hefur einnig leikið með Lille síðan hann yfirgaf deildina heima fyrir.