
Jóhann Berg Guðmundsson hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Mexíkó í lok mánaðar.
Jóhann Berg kemur inn fyrir Aron Elís Þrándarson, sem dró sig úr hópnum í gær vegna meiðsla.
Jóhann lék sinn hundraðasta landsleik á síðasta ári, en hann var í fréttum fyrr í vikunni eftir að hafa rift samningi sínum við Al-Dhafra í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum. Hann er því án félags.
Áður hafði Hallgrímur Mar Steingrímsson verið kallaður inn í hópinn fyrir Aron Sigurðarson, sem einnig dró sig úr hópnum.
Leikurinn fer fram í Mexíkó aðfaranótt fimmtudagsins 26. febrúar klukkan 02.